Logi og félagar á toppnum í Sambandsdeildinni

Logi og liðsfélagar hans í Samsunspor halda uppteknum hætti í Sambandsdeildinni.
Ljósmynd/Samsunspor

Logi Tómasson og liðsfélagar hans í tyrkneska liðinu Samsunspor halda uppteknum hætti í Sambandsdeildinni. Liðið vann í kvöld öruggan 3:0-sigur á Hamrun Spartans frá Möltu á heimavelli og er með fullt hús stiga eftir þrjá leiki í deildarfyrirkomulagi keppninnar.

Logi var í byrjunarliðinu og lék í 80 mínútur áður en hann fór af velli. Samsunspor hefur byrjað keppnina af miklum krafti, unnið alla sína leiki og ekki fengið á sig mark til þessa. Markatalan er 7:0 og liðið trónir á toppi Sambandsdeildarinnar.

Guðmundur Þórarinsson kom inn á sem varamaður á 88. mínútu hjá Noah frá Armeníu sem tapaði 1:2 fyrir Sigma Olomouc frá Tékklandi. Noah er með fjögur stig eftir fyrstu þrjá leikina.

Albert Guðmundsson var ekki í leikmannahópi Fiorentina vegna persónulegra ástæðna þegar ítalska liðið tapaði 2:1 fyrir Mainz frá Þýskalandi. Fiorentina hafði unnið fyrstu tvo leiki sína og er með sex stig.

Fyrri frétt

Gott gengi Elíasar held­ur áfram

Næsta frétt

Emilía skoraði í öðrum leiknum í röð