Elías Rafn Ólafsson og samherjar hans í danska liðinu Midtjylland halda áfram sigurgöngu sinni í Evrópudeildinni. Liðið vann 3:1 sigur á Celtic frá Skotlandi í Herning í kvöld og hefur unnið alla fjóra leiki sína í keppninni til þessa.
Elías Rafn stóð í marki Midtjylland sem gerði út um leikinn í fyrri hálfleik með þremur mörkum áður en gestirnir frá Glasgow náðu að skora sárabótarmark undir lokin. Midtjylland trónir nú á toppnum í deildarfyrirkomulagi keppninnar, með fullt hús stiga og besta árangur allra 36 liða sem taka þátt.
Hákon Arnar Haraldsson kom inn af bekknum á 81. mínútu þegar Lille tapaði 1:0 fyrir Rauðu stjörnunni í Belgrad. Lille hefur unnið tvo leiki og tapað tveimur til þessa og er með sex stig.
Kolbeinn Birgir Finnsson var ónotaður varamaður hjá Utrecht sem gerði 1:1 jafntefli við Porto og fékk þar með sitt fyrsta stig í keppninni.
Sverrir Ingi Ingason var á bekknum í 1:0-útisigri Panathinaikos á Malmö, en Daníel Tristan Guðjohnsen tók út leikbann hjá sænska liðinu. Panathinaikos er með sex stig, á meðan Malmö er aðeins með eitt stig.