Emilía skoraði í öðrum leiknum í röð

Emilía Kiær skoraði í öðrum leikn­um í röð fyr­ir þýska liðið RB Leipzig.
Ljósmynd/RB Leipzig

Emilía Kiær Ásgeirsdóttir heldur áfram að láta að sér kveða í þýsku úrvalsdeildinni, en hún skoraði í kvöld í öðrum leiknum í röð fyrir RB Leipzig þegar liðið vann 2:0-sigur á Jena á heimavelli.

Emilía var í byrjunarliði Leipzig og kom liðinu í forystu á 20. mínútu með skalla af stuttu færi eftir vel útfærða sókn. Hún var tekin af velli á 78. mínútu þegar sigurinn var tryggður.

Þetta er annar leikurinn í röð sem Emilía skorar í deildinni, en í síðustu umferð lék hún stórt hlutverk þegar Leipzig vann 4:2-sigur á Freiburg. Þar kom hún liðinu yfir snemma leiks og lagði síðar upp þriðja mark Leipzig í öruggum sigri.

RB Leipzig er nú komið upp í 8. sæti deildarinnar með 13 stig eftir níu umferðir.

Ingibjörg Sigurðardóttir var í byrjunarliði Freiburg og lék í 79 mínútur í 2:1-tapi gegn Hoffenheim. Freiburg er í 7. sæti með jafnmörg stig og Leipzig, en betri markatölu.

Hildur Antonsdóttir lék í 64 mínútur fyrir Madrid CFF þegar liðið vann stórsigur á Huelva, 7:1, í 32-liða úrslitum spænsku bikarkeppninnar.

Fyrri frétt

Logi og félagar á toppnum í Sambandsdeildinni

Næsta frétt

Brann gerði jafntefli á Ítalíu