Brann gerði jafntefli á Ítalíu

Íslendingaliðið Brann gerði jafntefli í Evrópudeildinni.
Ljósmynd/Brann

Eggert Aron Guðmundsson lék allan leikinn með Brann þegar norska liðið gerði markalaust jafntefli á útivelli gegn Bologna í Evrópudeildinni í kvöld.

Bologna missti mann af velli eftir tæpan hálftíma, en Brann tókst ekki að nýta sér liðsmuninn þrátt fyrir að vera sterkari aðilinn í seinni hálfleik. Freyr Alexandersson stýrir Brann, sem hefur nú sjö stig eftir fjóra leiki í keppninni. Sævar Atli Magnússon er enn frá vegna meiðsla.

Gísli Gottskálk Þórðarson var á varamannabekknum hjá Lech Poznan sem tapaði 3:2 fyrir Rayo Vallecano á Spáni. Poznan komst í 2:0 í fyrri hálfleik, en spænska liðið skoraði þrjú mörk eftir leikhlé og tryggði sér sigur með marki í uppbótartíma.

Fyrri frétt

Emilía skoraði í öðrum leiknum í röð

Næsta frétt

Lagði upp mark í sigri Horsens