Lagði upp mark í sigri Horsens

Guðlaugur Victor lagði upp í sigri Horsens.
Ljósmynd/Horsens

Guðlaugur Victor Pálsson átti góðan leik með Horsens þegar liðið vann 3:1-sigur á Kolding í dönsku B-deildinni í kvöld. Guðlaugur Victor lék allan leikinn í miðri vörninni og lagði upp annað mark liðsins í fyrri hálfleik.

Markið kom á 19. mínútu eftir aukaspyrnu inn í teig þar sem Guðlaugur skallaði boltann áfram og samherji hans stýrði honum í netið af stuttu færi.

Horsens hafði þá komið sér í 2:0-forystu og gerði út um leikinn áður en flautað var til hálfleiks, en öll fjögur mörkin í leiknum komu fyrir hlé.

Jóhannes Kristinn Bjarnason kom inn á sem varamaður á 57. mínútu fyrir Kolding, sem situr um miðja deild með 22 stig eftir 16 umferðir.

Horsens er hins vegar í mikilli baráttu um efstu sætin og situr nú í 3. sæti deildarinnar með 25 stig.

Ólafur Dan Hjaltason sat á varamannabekknum hjá liði sínu Aarhus Fremad sem tapaði 2:0 fyrir Hobro. Aarhus Fremad er í 9. sæti með 18 stig.

Fyrri frétt

Brann gerði jafntefli á Ítalíu

Næsta frétt

Albert kominn með nýjan þjálfara