Albert kominn með nýjan þjálfara

Albert er kominn með nýjan þjálfara hjá Fiorentina.
Ljósmynd/Fiorentina

Albert Guðmundsson er kominn aftur til Flórens eftir stutta dvöl á Íslandi fyrr í vikunni og verður með Fiorentina þegar liðið mætir Genoa í ítölsku A-deildinni á sunnudag. Þar mætir hann landsliðsfélaga sínum Mikael Agli Ellertssyni, sem leikur með Genoa.

Leikurinn verður sá fyrsti undir stjórn nýs þjálfara Fiorentina, Paolo Vanoli, sem tók við liðinu í dag. Fiorentina hefur átt erfitt uppdráttar á tímabilinu og situr á botni deildarinnar, tveimur stigum minna en Genoa.

Vanoli, sem síðast stýrði Torino, skrifaði undir samning út tímabilið með möguleika á framlengingu til sumarsins 2027. Hann þekkir félagið vel, en hann lék sjálfur með Fiorentina á árunum 2000 til 2002 og skoraði þá þrjú mörk í 61 leik.

Fyrri frétt

Lagði upp mark í sigri Horsens

Næsta frétt

Örugg­ur sig­ur hjá Bayern