Kom inn af bekknum og fiskaði víti

Hákon Arnar kom inn af bekknum og Lille sneri leiknum við.
Ljósmynd/LOSC

Lille vann 4:2-sigur á Paris FC í frönsku úrvalsdeildinni í kvöld eftir sterkan seinni hálfleik. Hákon Arnar Haraldsson hóf leik á varamannabekknum en kom inn af bekknum á 61. mínútu þegar staðan var 1:1. Paris hafði tekið forystuna snemma leiks en Olivier Giroud jafnaði rétt fyrir leikhlé.

Með innkomu Hákons jókst kraftur í sóknarleik Lille og liðið komst yfir á 77. mínútu þegar Giroud skoraði úr vítaspyrnu sem Hákon fiskaði, sem má sjá hér. Aissa Mandi bætti síðan við þriðja markinu hjá Lille.

Paris minnkaði muninn á lokakaflanum, en þegar komið var fram á uppbótartíma fékk Lille sína aðra vítaspyrnu í leiknum. Marius Broholm skoraði úr spyrnunni og tryggði Lille sigurinn. Liðið er nú í fjórða sæti deildarinnar með 23 stig.

Fyrri frétt

Jafntefli hjá Loga gegn Besiktas

Næsta frétt

Tómas byrjaði annan leikinn í röð