Samsunspor gerði 1:1-jafntefli á útivelli gegn Besiktas í tyrknesku úrvalsdeildinni í dag. Logi Tómasson lék allan leikinn fyrir Samsunspor og átti fínan leik.
Jafnteflið kemur rétt áður en Logi og samherjar hans halda til Íslands, en á fimmtudagskvöld mætir liðið Breiðabliki á Kópavogsvelli í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar.
Samsunspor situr í 4. sæti tyrknesku úrvalsdeildarinnar með 24 stig.
Andri Fannar Baldursson lék einnig allan leikinn í dag, þegar lið hans Kasimpasa vann 2:1 útisigur á Alanyaspor. Andri hefur fengið aukna ábyrgð á miðjunni og stóð sig vel í þessum sigri.
Sigurinn var kærkominn fyrir Kasimpasa sem lyftist upp í 13. sæti af átján liðum og heldur áfram að safna mikilvægum stigum í deildinni.