Bayern styrkti stöðu sína á toppn­um

Bayern München styrkti stöðu sína á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar.
Ljósmynd/Bayern München

Bayern München styrkti stöðu sína á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar með 5:1-sigri á Hoffenheim í dag. Þýskalandsmeistararnir náðu vopnum sínum í seinni hálfleik eftir að staðan var 1:1 í leikhléi.

Glódís Perla Viggósdóttir kom inn á í seinni hálfleik hjá Bayern og tók þátt í að halda leiknum í föstum skorðum þegar liðið tryggði sér afgerandi sigur. Bayern er áfram í efsta sæti og nú með 31 stig, sex stigum á undan Wolfsburg eftir ellefu umferðir.

Emilía Kiær Ásgeirsdóttir lék fyrri hálfleikinn fyrir RB Leipzig í 1:3-tapi gegn Wolfsburg. Leipzig er með 13 stig í 9. sæti deildarinnar.

Sandra María Jessen var í byrjunarliði og spilaði allan leikinn fyrir Köln í 1:1-jafntefli gegn Werder Bremen. Köln er í 8. sæti með 15 stig.

Hlín Eiríksdóttir lék allan leikinn í fremstu víglínu Leicester City þegar liðið laut í lægra haldi fyrir Crystal Palace, 0:3, í enska deildabikarnum.

Amanda Andradóttir lék í 62 mínútur í 3:1-sigri Twente á Excelsior í hollensku úrvalsdeildinni. Twente er á toppnum með 22 stig eftir átta umferðir.

Þá lék Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir allan leikinn fyrir PEC Zwolle þegar liðið rótburstaði Ajax, 7:1. PEC Zwolle er í 5. sæti með 18 stig, aðeins fjórum stigum á eftir Twente.

Fyrri frétt

Kristall skoraði í drama­tísk­um Íslendingaslag

Næsta frétt

Jafntefli hjá Loga gegn Besiktas