Katla til Fior­ent­ina

Katla Tryggva­dótt­ir er geng­in til liðs Fior­ent­ina frá Kristianstad.
Ljósmynd/Fiorentina

Katla Tryggvadóttir hefur skrifað undir samning við Fiorentina á Ítalíu og var hún kynnt til leiks í morgun.

Katla er aðeins tvítug að aldri en hefur þegar látið til sín taka. Hún gekk til liðs við Kristianstad í Svíþjóð árið 2023 eftir að hafa vakið athygli með Þrótti Reykjavík í Bestu deildinni, þar sem hún skoraði 13 mörk í 39 leikjum. Ferilinn hóf hún upphaflega með Val.

Í síðasta mánuði lék Katla sinn fyrsta leik á stórmóti með íslenska A-landsliðinu þegar liðið tók þátt í Evrópumótinu í Sviss. Hún hefur alls spilað níu A-landsleiki og á auk þess að baki 29 leiki og 11 mörk með yngri landsliðum Íslands.

Fiorentina endaði í fjórða sæti ítölsku A-deildarinnar á síðasta tímabili og er eitt af bestu liðum deildarinnar. Alexandra Jóhannsdóttir, sem nú leikur með Kristianstad, var áður á mála hjá Fiorentina. Íslensku landsliðskonurnar Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Cecilía Rán Rúnarsdóttir leika síðan með Inter á Ítalíu.

Fyrri frétt

Arnór kom inn á í baráttunni um brúna

Næsta frétt

Hólmbert Aron til Gwangju í Suður-Kóreu