Hólmbert Aron Friðjónsson er genginn til liðs við Gwangju FC sem leikur í efstu deild í Suður-Kóreu. Hann er þar með fyrsti íslenski knattspyrnumaðurinn sem leikur sem atvinnumaður í landinu.
Hólmbert er 32 ára og kemur frá þýska B-deildarliðinu Preussen Münster þar sem samningur hans rann út. Á ferlinum hefur hann einnig leikið með Bröndby, Aalesund, Lilleström, Brescia, Holstein Kiel og Celtic. Á Íslandi hefur hann spilað með HK, Fram, KR og Stjörnunni.
Alls hefur hann leikið 288 deildarleiki á ferlinum og skorað 84 mörk. Þá á hann sex A-landsleiki og tvö mörk að baki með íslenska A-landsliðinu.
Gwangju er í sjötta sæti deildarinnar eftir 24 umferðir af 33 í ár. Borgin Gwangju er staðsett í suðvesturhluta Suður-Kóreu og þar búa um 1,4 milljónir manna.