Jóhannes Kristinn Bjarnason var á skotskónum þegar Kolding vann öruggan 4:0 sigur á Odense KFUM í 1. umferð dönsku bikarkeppninnar í gær. Hann kom liðinu í 2:0 með marki á 36. mínútu og lék allan leikinn.
Þetta var annað verkefni hans með danska liðinu eftir að hann gekk í raðir Kolding frá KR á dögunum. Fyrsti leikurinn kom nýverið í 3:1 sigri á Koge í dönsku B-deildinni þar sem hann kom inn á sem varamaður undir lokin. Ari Leifsson var ekki í leikmannahópi Kolding að þessu sinni.
Í öðrum leikjum gærdagsins í dönsku bikarkeppninni lék Ísak Snær Þorvaldsson fyrstu 70 mínúturnar fyrir Lyngby sem lagði Helsingør 1:0.
AB, undir stjórn Jóhannesar Karls Guðjónssonar, vann 3:1 sigur á Rudersdal. Adam Benediktsson og Ægir Jarl Jónasson voru ekki í leikmannahópnum.