Lille vann öruggan 3:0 sigur á Venezia í æfingaleik í dag og átti Hákon Arnar Haraldsson þátt í fyrsta marki Olivier Giroud fyrir félagið.
Á 20. mínútu leiksins lagði Hákon upp mark þegar hann renndi boltanum fyrir á Giroud sem kláraði af stuttu færi og skoraði sitt fyrsta mark í treyju Lille. Giroud bætti við öðru marki áður en hálfleikurinn var úti.
Lille var mun sterkara liðið og stýrði leiknum frá upphafi til enda á æfingasvæði sínu í Domaine de Luchin.
Síðasti æfingaleikur Lille fyrir tímabilið fer fram gegn West Ham í London á laugardag. Fyrsti leikur Lille í frönsku úrvalsdeildinni er svo þann 17. ágúst þegar liðið heimsækir Brest.