Þrír íslenskir leikmenn voru á leikskýrslu þegar Malmö og FC Kaupmannahöfn skildu jöfn, 0:0, í fyrri leik liðanna í 3. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld.
Arnór Sigurðsson kom inn á sem varamaður hjá Malmö á 75. mínútu og Daníel Tristan Guðjohnsen sat allan leikinn á varamannabekk liðsins. Hjá FC Kaupmannahöfn var Rúnar Alex Rúnarsson varamarkvörður.
Leikurinn fór fram á Eleda Stadion-leikvanginum í Malmö og einkenndist af skipulögðum varnarleik og takmörkuðum marktækifærum. Hvorugt liðið náði yfirhöndinni og fátt markvert gerðist þrátt fyrir mikla baráttu.
Andrúmsloftið var þó spennuþrungið, sérstaklega fyrir leik, þegar lögregla þurfti að bregðast við stuðningsmönnum FC Kaupmannahafnar sem kveiktu í blysum og trufluðu gönguna að leikvanginum. 29 aðdáendum var snúið við á Eyrarsundsbrúnni og um 50 fengu ekki aðgang að vellinum vegna óláta. Spennan milli liðanna er mikil, enda aðeins 28 kílómetrar á milli borganna.
Seinni leikur liðanna fer fram í Kaupmannahöfn að viku liðinni.