Jóhannes Kristinn Bjarnason er genginn til liðs við Kolding í Danmörku en hann skrifaði undir samning við liðið í dag.
Greint hefur verið frá því að Kolding greiði KR um tíu milljónir íslenskra króna fyrir Jóhannes. Hann lék 14 deildarleiki fyrir KR á leiktíðinni og skoraði í þeim sex mörk og lagði upp önnur þrjú í Bestu deildinni.
Bjarni Guðjónsson, faðir Jóhannesar, birti mynd af syninum við undirskrift á samningi við Kolding á Facebook-síðu sinni í dag.
Kolding IF leikur í dönsku B-deildinni og er í 5. sæti deildarinnar eftir aðeins tvær umferðir. Ari Leifsson leikur með liðinu.