15 ára gamli markvörðurinn Marcelo Ávalos, sem er með íslenskan bakgrunn, er nú á reynslu hjá ítalska liðinu Bologna og verður þar í eina viku. Marca greinir frá.
Marcelo fæddist í Kaliforníu í Bandaríkjunum en á mexíkóskan föður og íslenska móður. Hann er því með þrefalt ríkisfang; bandarískt, mexíkóskt og íslenskt. Hann leikur með unglingaliði Philadelphia Union og var áður í unglingaliði San Jose Earthquakes.
Á síðasta ári var hann valinn í U16 landslið Mexíkó og lék tvo vináttuleiki gegn Bandaríkjunum. Þar sem hann er með íslenskt ríkisfang þarf hann ekki atvinnuleyfi innan Evrópu og gæti gengið til liðs við Bologna þegar hann verður 16 ára í nóvember á þessu ári.