Andri Fannar orðinn leikmaður Kasimpasa

Kasimpasa í Tyrklandi hefur samið við Andra Fannar. Hann kemur frá Bologna á Ítalíu.
Ljósmynd/Kasimpasa

Kasimpasa í Tyrklandi hefur samið við miðjumanninn Andra Fannar Baldursson. Hann kemur frá Bologna á Ítalíu.

Andri Fannar lék aðeins 16 leiki hjá Bologna en hann lék á lánssamningi hjá FC Kaupmannahöfn, NEC Nijmegen og Elfsborg í Svíþjóð á síðustu árum.

Í síðasta mánuði framlengdi Bologna samning hans um ár og því þurfti tyrkneska félagið að kaupa hann. Andri hefur skrifað undir þriggja ára samning við Kasimpasa sem endaði í 10. sæti tyrknesku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili.

Andri Fannar er uppalinn hjá Breiðabliki og hefur leikið tíu A-landsleiki fyrir Ísland. Hann hefur einnig spilað 56 leiki fyrir yngri landsliðin.

Fyrri frétt

Efnilegur markvörður á reynslu hjá Bologna – Getur valið að leika fyrir Ísland

Næsta frétt

Orri svellkaldur á vítapunktinum – Myndband