Orri svellkaldur á vítapunktinum – Myndband

Orri Steinn heldur áfram að skora fyrir Real Sociedad í undirbúningi liðsins fyrir nýtt tímabil.
Ljósmynd@RealSociedadEN

Orri Steinn Óskarsson heldur áfram að skora fyrir Real Sociedad í undirbúningi liðsins fyrir nýtt tímabil. Hann kom inn af bekknum í hálfleik í æfingaleik gegn Osasuna í dag og skoraði aðeins nokkrum mínútum síðar úr vítaspyrnu. Real Sociedad vann leikinn 4:1.

Markið kom af víta­punkt­in­um og gerði Orri sér lítið fyr­ir og lyfti bolt­an­um á mitt markið á meðan markmaður­inn skutlaði sér. Þetta skemmti­lega víti má sjá hér fyr­ir neðan.

Með þessu marki er Orri kominn með þrjú mörk í síðustu tveimur leikjum á undirbúningstímabilinu og virðist í góðu formi fyrir upphaf tímabilsins á Spáni.

Fyrri frétt

Andri Fannar orðinn leikmaður Kasimpasa

Næsta frétt

Guðmundur með stoðsendingu – Brann færist í Evrópudeildina