Guðmundur Þórarinsson lagði upp þriðja mark Noah í 4:3 tapi liðsins gegn Ferencvaros. Guðmundur lagði upp markið á 71. mínútu en Noah jafnaði þá metin í 3:3.
Stoðsendingin dugði hins vegar ekki til þar sem Ferencvaros skoraði þremur mínútum síðar sem reyndist sigurmarkið. Guðmundur var tekinn af velli á 84. mínútu. Ferencvaros sigraði einvígið samanlagt 6:4 og Noah mun nú færast yfir í Evrópudeildina, þar sem liðið mun mæta Lincoln Red Imps í 3. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar.
Brann, undir stjórn Freys Alexanderssonar, gerði 1:1 jafntefli við Salzburg og er úr leik eftir að hafa tapað einvíginu samanlagt 5:2. Eggert Aron Guðmundsson lék allan leikinn fyrir Brann og Sævar Atli Magnússon lék fyrstu 72 mínúturnar.
Brann mun færast yfir í Evrópudeildina og mun annað hvort mæta Anderlecht eða Häcken í 3. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar.
Gísli Gottskálk Þórðarson og samherjar hans í Lech Poznan eru komnir áfram eftir 1:0-útisigur á Breiðabliki í kvöld, en Lech Poznan vann einvígið samanlagt 8:1. Gísli lék fyrstu 75 mínúturnar í leiknum.
Arnór Sigurðsson kom inn á sem varamaður á 69. mínútu hjá Malmö í 1:0 sigri gegn RFS. Malmö er komið áfram í 3. umferð forkeppninnar og mun þar mæta FC Kaupmannahöfn.
Stoðsending Guðmundar: