Ísak Bergmann Jóhannesson skoraði eitt mark og lagði upp annað þegar lið hans Köln vann stórsigur á Siegburg, 7:0, í æfingaleik í gær.
Ísak var allt í öllu í leiknum, skoraði frábært og lagði upp eitt mark, ásamt því eiga þátt í einu öðru marki. Markið og fleiri svipmyndir frá Ísaki í leiknum má sjá hér að neðan.
Ísak Bergmann gekk í raðir Köln frá Fortuna Düsseldorf fyrr í sumar. Köln sigraði þýsku B-deildina á síðustu leiktíð og mun því leika í þýsku úrvalsdeildinni á komandi leiktíð sem hefst þann 24. ágúst.