Ísak skoraði í öðrum leiknum í röð

Ísak Snær var á skotskónum í öðrum leiknum í röð með Lyngby.
Ljósmynd/Lyngby

Framherjinn Ísak Snær Þorvaldsson var á skotskónum í öðrum leiknum í röð með liði sínu Lyngby í dönsku B-deildinni í kvöld.

Lyngby gerði 1:1 jafntefli við B93 og Ísak Snær skoraði eina mark Lyngby á 72. mínútu leiksins. Hann byrjaði upphaflega leikinn á varamannabekknum en lék allan seinni hálfleikinn.

Ísak Snær skoraði um síðustu helgi þegar hann lék sinn fyrsta leik með Lyngby í útisigri á Esbjerg. Lyngby er í öðru sæti í dönsku B-deildinni með fjögur stig eftir fyrstu tvo leikina.

Ólafur Dan Hjaltason lék í 81 mínútu fyrir Aarhus Fremad þegar liðið tapaði 2:1 fyrir HB Koge. Þá var Galdur Guðmundsson ónotaður varamaður hjá AC Horens í 2:1 sigri gegn Kolding. Ari Leifsson var í leikbanni hjá Kolding eftir að hafa fengið beint rautt spjald um síðustu helgi.

Í pólsku úrvalsdeildinni lék Davíð Kristján Ólafsson allan leikinn fyrir Cracovia í 2:0 sigri á Termalica Nieciecza. Cracovia byrjar tímabilið vel og er í fyrsta sæti eftir fyrstu tvær umferðirnar.

Fyrri frétt

Ísak lagði upp gegn Leicester

Næsta frétt

Mark Ísaks – Myndband