Mark Ísaks – Myndband

Ísak Snær skoraði í öðrum leiknum í röð með Lyngby í Danmörku.
Ljósmynd/Lyngby

Ísak Snær Þorvaldsson skoraði í öðrum leiknum í röð með Lyngby þegar liðið gerði 1:1 jafntefli við B93 í dönsku B-deildinni í dag.

Ísak Snær skoraði um síðustu helgi þegar hann lék sinn fyrsta leik með Lyngby í útisigri á Esbjerg, en í dag skoraði hann eina mark Lyngby á 71. mínútu eftir að hafa komið inn á sem varamaður í hálfleik.

Hér að neðan má sjá markið hjá Ísaki í dag.

Fyrri frétt

Ísak skoraði í öðrum leiknum í röð

Næsta frétt

Þrír skoruðu í Noregi