Ísak lagði upp gegn Leicester

Ísak Bergmann lagði upp mark í sigri Köln á Leicester City.
Ljósmynd/Köln

Ísak Bergmann Jóhannesson lagði upp annað mark Köln í sigri á Leicester City, 3:1, í æfingaleik liðanna í Austurríki í dag.

Ísak Bergmann lagði upp mark fyrir Gian-Luca Waldschmidt á 17. mínútu leiksins, sem má sjá hér að neðan.

Ísak Bergmann gekk í raðir Köln frá Fortuna Düsseldorf í byrjun síðasta mánaðar. Köln sigraði þýsku B-deildina á síðustu leiktíð og mun því spila í þýsku úrvalsdeildinni á komandi leiktíð sem hefst þann 24. ágúst.

Fyrri frétt

Orri skoraði bæði mörk Sociedad – Myndband

Næsta frétt

Ísak skoraði í öðrum leiknum í röð