Íslenskar knattspyrnukonur komu við sögu í Evrópukeppni kvenna í dag þegar bæði Inter frá Mílanó og danska liðið Køge unnu mikilvæga sigra.
Cecilía Rán Rúnarsdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, leikmenn Inter á Ítalíu, tóku báðar þátt í 4:1-sigri liðsins á Hibernian í forkeppni Evrópubikarsins í Mílanó í kvöld. Inter hafði tveggja marka forskot í hálfleik og bætti við tveimur mörkum eftir hlé.
Karólína lék á miðjunni og fór af velli eftir klukkutíma leik en Cecilía stóð í markinu allan leikinn. Liðin mætast aftur eftir viku í Skotlandi þar sem sigurvegari einvígisins fer áfram í aðra umferð keppninnar.
Fyrr í dag sneri Emelía Óskarsdóttir aftur til keppni með Køge í Danmörku eftir meira en árs fjarveru vegna krossbandsslita. Hún kom inn á sem varamaður um tíu mínútum fyrir leikslok þegar liðið mætti Farul Constanta í fyrstu umferð Evrópubikarsins.
Þetta var fyrsti leikur hennar í rúmt ár en Emelía er aðeins 19 ára og hefur leikið 37 leiki með yngri landsliðum Íslands. Køge vann leikinn 3:2 og fer því með naumt forskot í seinni viðureignina í Rúmeníu í næstu viku.