Daníel Freyr á lista yfir efnilegustu leikmenn heims

Daníel Freyr er á lista yfir 200 efnilegustu knattspyrnumenn heims undir tvítugu.
Ljósmynd/Midtjylland

Daníel Freyr Kristjánsson hefur verið valinn á lista Football Observatory yfir 200 efnilegustu knattspyrnumenn heims undir tvítugu. Fótbolti.net greindi frá.

Greiningin byggir annars vegar á tölfræði og frammistöðu leikmanna og hins vegar á leikreynslu í sterkum deildum. Í efstu sætunum eru leikmenn Barcelona, Lamine Yamal og Pau Cubarsí, en Daníel er á meðal þeirra sem taldir eru líklegir til að láta til sín taka á næstu árum.

Daníel, sem er 19 ára gamall vinstri bakvörður, er samningsbundinn Midtjylland í Danmörku en leikur nú með Fredericia í dönsku úrvalsdeildinni á lánssamningi. Hann átti stóran þátt í að Fredericia tryggði sér sæti í efstu deild á síðustu leiktíð.

Uppalinn hjá Stjörnunni í Garðabæ hélt hann snemma til Danmerkur og hefur þegar leikið 35 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands, þar af tíu með U21 árs landsliðinu.

Fyrri frétt

Arna til Vålerenga

Næsta frétt

Inter vann stórsigur – Emelía lék sinn fyrsta leik í rúmt ár