Breki spilaði með Esbjerg í bikarsigri

Breki og samherjar hans í Esbjerg eru komnir áfram í bikarnum.
Ljósmynd/Esbjerg

Breki Baldursson lék með Esbjerg þegar liðið tryggði sér sæti í 3. umferð dönsku bikarkeppninnar með 2:1 sigri á Vejgaard í dag.

Breki var í byrjunarliði Esbjerg og lék fyrri hálfleikinn. Leikurinn fór þó úr skorðum þar sem óveður reið yfir og leikmenn neyddust til að halda til búningsherbergja í nær klukkutíma áður en haldið var áfram. Breki fór af velli í hálfleik þegar staðan var 1:0 fyrir Esbjerg.

Esbjerg tryggði sér að lokum sigurinn með marki undir lokin og er komið áfram í 3. umferð bikarsins þar sem Ringsted IF bíður.

Fyrri frétt

Inter vann stórsigur – Emelía lék sinn fyrsta leik í rúmt ár

Næsta frétt

Vigdís skoraði í stórsigri Anderlecht – Sædís lagði upp