Hörður semur ekki við Anorthosis á Kýpur

Ekk­ert verður af því að Hörður Björgvin semji við Anorthosis Famagusta á Kýpur.
Ljósmynd/Panathinaikos

Ekk­ert verður af því að Hörður Björgvin Magnússon gangi til liðs við Anorthosis Famagusta á Kýpur. Þetta staðfesti Stavros Zakos, fjármálastjóri félagsins, í sjónvarpsþætti á Cytavision í gærkvöldi og sagði fjárhagsstaðan standa í vegi fyrir frekari leikmannakaupum.

„Við höfum einfaldlega ekki bolmagn til að bæta við leikmönnum,“ sagði Zakos og bætti við að ekki væri mögulegt að semja við Hörð Björgvin, þrátt fyrir að hann hafi komið til Kýpur til að ræða við liðið.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hafði Hörður Björgvin fengið tilboð frá Anorthosis og flogið til Larnaca til að ganga frá samningi. Fljótlega eftir komu hans bárust þó liðinu þung tíðindi. Íþróttadómstóllinn CAS úrskurðaði að greiða þyrfti tveimur fyrrum leikmönnum 1,1 milljón evra vegna vangoldinna launa. Liðið fékk 45 daga til að klára greiðslurnar og stendur jafnframt frammi fyrir hættu á félagaskiptabanni.

Hörður, sem er 32 ára, hefur verið samningslaus frá því í sumar þegar samningur hans við Panathinaikos í Grikklandi rann út. Hann heldur áfram að leita sér að nýju liði og hafa lið í Grikklandi, Tyrklandi og á Mið-Austurlöndum sýnt honum áhuga.

Fyrri frétt

Magnaður Daníel skoraði tvö – Sjáðu mörkin

Næsta frétt

Daníel Tristan í liði vikunnar í Svíþjóð