Daníel Tristan Guðjohnsen átti stórleik fyrir Malmö í 2:2-jafntefli liðsins gegn Elfsborg í sænsku úrvalsdeildinni í dag. Hann skoraði bæði mörk Malmö í fyrri hálfleik og fékk mikið lof fyrir frammistöðu sína.
Daníel kom Malmö yfir strax á 8. mínútu þegar hann skoraði úr vítaspyrnu. Eftir rúmlega hálftíma leik bætti hann við öðru marki með laglegu skoti í vinstra neðra hornið. Mörkin hans má sjá hér að neðan.
Í hálfleik lét sérfræðingurinn Alexander Axén ekki sitt eftir liggja og hrósaði Daníel í hástert í beinni útsendingu á HBO Max. „Ég skil ekki af hverju hann hefur ekki fengið að spila meira. Hann er frábær leikmaður og hefði getað skorað 15–20 mörk ef hann hefði fengið fleiri tækifæri,“ sagði Axén.
Elfsborg svaraði þó í seinni hálfleik og jafnaði með tveimur mörkum á aðeins sex mínútum, á 71. og 77. mínútu. Daníel Tristan lék fyrstu 78 mínúturnar fyrir Malmö en Arnór Sigurðsson þurfti að yfirgefa völlinn eftir hálftíma leik vegna meiðsla.
Júlíus Magnússon lék allan leikinn fyrir Elfsborg og Ari Sigurpálsson kom inn á sem varamaður á 66. mínútu.
Malmö er í fjórða sæti deildarinnar með 39 stig eftir 23 umferðir, en Elfsborg er í sjöunda sæti með 37 stig.