Sænski fjölmiðillinn TuttoSvenskan hefur valið Daníel Tristan Guðjohnsen í lið vikunnar í sænsku úrvalsdeildinni eftir frábæra frammistöðu hans með Malmö um nýliðna helgi.
Framherjinn ungi skoraði bæði mörk Malmö í 2:2-jafntefli gegn Elfsborg. Hann kom Malmö yfir úr vítaspyrnu strax á 8. mínútu og bætti við öðru marki með nákvæmu skoti í vinstra neðra hornið þegar rúmur hálftími var liðinn af leiknum.
Frammistaðan vakti mikla athygli og var Daníel hrósað í hástert af sérfræðingum í Svíþjóð, sem töldu að hann hefði átt að fá stærra hlutverk hjá Malmö frá upphafi leiktíðar. Liðið er í fjórða sæti deildarinnar með 39 stig eftir 23 umferðir.