Hákon skoraði í stórsigri

Hákon Arnar skoraði eitt mark í 7:1-stórsigri Lille.
Ljósmynd/Lille

Hákon Arnar Haraldsson var á meðal markaskorara þegar Lille vann glæsilegan 7:1-útisigur á Lorient í frönsku úrvalsdeildinni í dag.

Leikurinn var markalaus í hálfleik en í seinni hálfleik skoraði Lille sjö mörk og tryggði sér afar sannfærandi sigur. Hákon skoraði fimmta mark liðsins á 87. mínútu með hægri fæti úr miðjum teignum í fjærhornið.

Þetta var annað mark Hákons á leiktíðinni, en hann hefur nú skorað tvisvar í fyrstu þremur leikjum Lille í deildinni. Liðið hefur safnað sjö stigum af níu mögulegum og situr tímabundið á toppi deildarinnar.

Fyrri frétt

Gautaborg í þriðja sætið

Næsta frétt

Orri byrjaði í tapi Real Sociedad