Kolbeinn Þórðarson lék allan leikinn fyrir Gautaborg sem vann 1:0-heimasigur á Varnamo í sænsku úrvalsdeildinni í dag.
Með sigrinum fór Gautaborg upp í þriðja sæti deildarinnar sem er Evrópusæti. Gautaborg er með 38 stig eftir 22 umferðir en Malmö og AIK, sem eru bæði með 37 stig, eiga leiki á morgun og geta farið upp fyrir Gautaborg.
Júlíus Magnússon lék allan leikinn fyrir Elfsborg sem tapaði 3:0 fyrir Brommapojkarna. Ari Sigurpálsson var ónotaður varamaður hjá Elfsborg og Hlynur Freyr Karlsson var það sömuleiðis hjá Brommapojkarna. Elfsborg er í 6. sæti á meðan Brommapojkarna er í 9. sæti.
Stefán Teitur Þórðarson var í byrjunarliði Preston og lék í 67 mínútur í 1:0 tapi liðsins gegn Portsmouth í ensku B-deildinni. Preston hefur farið ágætlega af stað á leiktíðinni og er í 9. sæti eftir fjórar umferðir.
Í ensku C-deildinni kom Benoný Breki Andrésson inn á sem varamaður á 70. mínútu hjá Stockport sem gerði 1:1 jafntefli við Wigan. Stockport er í 8. sæti eftir sex umferðir.
Þá hélt Lukas Petersson hreinu í 1:0 sigri hjá varaliði Hoffenheim gegn Hansa Rostock í þýsku C-deildinni.