Aron Einar meiddur og missir af landsleikjunum

Aron Einar verður frá keppni næstu tvær til þrjár vikur vegna meiðsla.
Ljósmynd/al-sharq.com

Al-Gharafa í Katar greindi frá því í dag að Aron Einar Gunnarsson hafi meiðst í 2:0 tapi liðsins gegn Al-Sadd síðasta fimmtudag. Hann þurfti að fara af velli í seinni hálfleik eftir að hafa fundið til í vinstra læri og samkvæmt læknateymi liðsins verður hann frá keppni næstu tvær til þrjár vikur.

Meiðslin þýða að Aron Einar verður ekki með íslenska landsliðinu í undankeppni HM 2026 í byrjun september. Ísland mætir Aserbaídsjan 5. september og Frakklandi fjórum dögum síðar.

Forföll hans eru áfall fyrir landsliðið sem stendur frammi fyrir tveimur krefjandi leikjum í undan­keppni HM 2026.

Fyrri frétt

Enn eitt markið hjá Ísaki

Næsta frétt

Gautaborg í þriðja sætið