Ísak Snær Þorvaldsson skoraði enn eitt markið fyrir Lyngby í dag þegar liðið gerði 2:2 jafntefli við Middelfart í dönsku B-deildinni.
Hann kom Lyngby í forystu á 26. mínútu með skoti með hægri fæti úr miðjum teignum í vinstra hornið. Ísak lék fyrstu 64 mínúturnar í leiknum og þegar hann fór af velli var staðan 2:0 fyrir Lyngby, en Middelfart jafnaði með tveimur mörkum á lokakaflanum.
Ísak Snær er nú kominn með fimm mörk í fyrstu átta leikjum tímabilsins og hefur reynst lykilmaður í sóknarleik Lyngby. Liðið er í 4. sæti deildarinnar með 12 stig.