Andri Lucas á leið til Blackburn

Andri Lucas er á leið til Blackburn Rovers í ensku B-deildinni.
Ljósmynd/Gent

Andri Lucas Guðjohnsen er á leið til Blackburn Rovers í ensku B-deildinni en samkvæmt fréttum belgíska blaðamannsins Sacha Tavolieri hafa Blackburn og Gent náð samkomulagi um kaupverð sem nemur tveimur milljónum evra, eða um 1,7 milljónum punda.

Tavolieri greinir jafnframt frá því að Andri hafi þegar yfirgefið Belgíu og muni gangast undir læknisskoðun hjá enska liðinu í dag. Ef allt gengur upp verður hann kynntur sem nýr leikmaður Blackburn áður en félagaskiptaglugginn lokar á mánudag.

Andri Lucas gekk til liðs við Gent síðasta sumar og lék 46 leiki fyrir liðið, þar sem hann skoraði fimm mörk og lagði upp tvö. Hann hefur hins vegar aðeins fengið fimm mínútur í fyrstu tveimur leikjum tímabilsins og var því talinn líklegur til að yfirgefa liðið.

Fyrri frétt

Fyrsta tap Birmingham

Næsta frétt

Enn eitt markið hjá Ísaki