Orri byrjaði í tapi Real Sociedad

Orri Steinn var í byrjunarliði Real Sociedad þegar liðið tapaði fyrir Real Oviedo.
Ljósmynd/Real Sociedad

Landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson var í byrjunarliði Real Sociedad í spænsku úrvalsdeildinni í dag þegar liðið tapaði fyrir Real Oviedo, 1:0, á útivelli.

Leikurinn var liður í 3. umferð deildarinnar og Orri Steinn lék í 56 mínútur áður en hann var tekinn af velli. Í fyrstu tveimur umferðunum kom hann inn á sem varamaður í jafnteflisleikjum við Valencia og Espanyol. Real Sociedad er aðeins með tvö stig í upphafi leiktíðar.

Andri Fannar Baldursson var í byrjunarliði Kasımpaşa í 3:2 tapi gegn Gaziantep í tyrknesku úrvalsdeildinni en hann var tekinn af velli á 88. mínútu. Kasımpaşa er án stiga eftir þrjár umferðir.

Hjörtur Hermannsson lék allan leikinn fyrir Volos sem tapaði 2:0 gegn meisturum Olympiacos á heimavelli í grísku úrvalsdeildinni. Volos er án stiga eftir tvo leiki.

Bjarki Steinn Bjarkason lék fyrstu 76 mínútunar fyrir Venezia sem gerði markalaust jafntefli við Juve Stabia í ítölsku B-deildinni. Venezia er með fjögur stig eftir tvær umferðir.

Í ítölsku C-deildinni lék Kristófer Jónsson allan leikinn fyrir Triestina sem gerði 1:1 jafntefli við Lecco. Triestina er með eitt stig eftir tvær umferðir. Þá var Óttar Magnús Karlsson í fremstu víglínu Renate í 1:1 jafntefli gegn Giana Erminio. Renate er með fjögur stig.

Fyrri frétt

Hákon skoraði í stórsigri

Næsta frétt

Sædís fór áfram