Häcken hafði betur gegn Inter og mætir Breiðabliki

Häcken, lið Fanneyju, komst áfram í átta liða úrslit Evrópubikars kvenna.
Ljósmynd/Hacken

Häcken komst áfram í átta liða úrslit Evrópubikars kvenna eftir markalaust jafntefli gegn Inter í Mílanó í kvöld. Sænska liðið hafði unnið fyrri leikinn 1:0 og hélt forskotinu til loka.

Cecilía Rán Rúnarsdóttir stóð í marki Inter og hélt hreinu og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir lék einnig allan leikinn fyrir liðið. Fanney Inga Birkisdóttir var á varamannabekknum hjá Häcken. Sænsku meistararnir mæta Breiðabliki í næstu umferð.

Anderlecht féll úr keppni eftir 2:1-tap gegn Austria Vienna. Vigdís Lilja Kristjánsdóttir var í byrjunarliði Anderlecht, sem náði að minnka muninn í leiknum en komst ekki nær því að vinna upp tapið úr fyrri viðureigninni.

Arna Eiríksdóttir var í byrjunarliði Vålerenga í 2:2-jafntefli gegn St. Pölten í Meistaradeild Evrópu. Norska liðið var komið í góða stöðu snemma leiks en gestirnir jöfnuðu með marki úr vítaspyrnu í seinni hálfleik. Sædís Rún Heiðarsdóttir kom inn á undir lokin. Vålerenga er með fjögur stig eftir fjórar umferðir.

Fyrri frétt

Orri til FC Kaupmannahafnar á nýjan leik?

Næsta frétt

Thelma Karen til Häcken