Thelma Karen til Häcken

Hin unga og efnilega Thelma Karen er gengin til liðs við Häcken.
Ljósmynd/

BK Häcken, nýkrýndir sænskir meistarar, hafa tryggt sér þjónustu Thelmu Karenar Pálmadóttur frá FH. Samningurinn gildir til ársins 2028 og var tilkynntur í dag á miðlum félagsins.

Thelma, sem fædd er árið 2008, lék stórt hlutverk í góðu gengi FH á nýliðnu tímabili þar sem liðið endaði í öðru sæti í Bestu deildinni. Hún skoraði átta mörk í 23 deildarleikjum, var kjörin efnilegasti leikmaður Bestu deildarinnar og tók þátt í úrslitaleik bikarsins þar sem hún skoraði bæði mörk FH.

Í tilkynningu Häcken segir Martin Ericsson, yfirmaður knattspyrnumála, að félagið sjái í Thelmu einstaklega efnilegan leikmann sem passi vel inn í leikstíl meistaranna. „Hún er sóknarsinnaður leikmaður með góða tækni, hæð og hraða,“ sagði Ericsson.

Thelma sjálf lýsir mikilli ánægju með skiptin. „Þetta er frábær tilfinning. Þetta er stórt félag og heiður að fá að klæðast treyjunni,“ sagði hún í viðtali við Häcken. Hún segir ákvörðunina hafa verið auðvelda um leið og áhugi félagsins kom fram. „Ég varð mjög spennt. Þetta er risastórt tækifæri sem ég vildi ekki missa af.“

Häcken mætir Breiðabliki í átta liða úrslitum Evrópubikarsins í febrúar og eru líkur á að fyrstu leikir Thelmu með félaginu verði einmitt gegn íslenskum andstæðingi. Með Häcken leikur landsliðsmarkvörðurinn Fanney Inga Birkisdóttir og Eyrún Embla Hjartardóttir er þar í varaliðinu.

Fyrri frétt

Häcken hafði betur gegn Inter og mætir Breiðabliki

Næsta frétt

Aron áfram á toppnum