Orri til FC Kaupmannahafnar á nýjan leik?

Umræða hefur myndast um að Orri Steinn gæti verið lánaður til FC Kaupmannahafnar.
Ljósmynd/Real Sociedad

Í nýrri umfjöllun í hlaðvarpsþættinum Transferguru hjá Tipsbladet var nafni Orra Steins Óskarssonar, leikmanni Real Sociedad, kastað fram sem einum af þeim leikmönnum sem FC Kaupmannahöfn gæti hugsanlega horft til þegar félagaskiptaglugginn opnast í janúar.

FC Kaupmannahöfn hefur átt erfitt með að finna réttu uppstillinguna í sóknarleiknum upp á síðkastið og í þættinum var rætt að liðið gæti viljað fá framherja sem gæti komið beint inn í liðið. Í því samhengi var bent á að Orri, sem hefur lítið verið með vegna meiðsla að undanförnu, gæti hentað vel í slíkt hlutverk.

Einnig kom fram að lánssamningur gæti verið raunhæfasti kosturinn ef af yrði. Sá möguleiki er talinn henta vel þar sem Orri fengi mikilvægan leiktíma á ný og FC Kaupmannahöfn bætti við sig framherja sem þekkir bæði liðið og umhverfið.

Orri lék áður 62 leiki fyrir FC Kaupmannahöfn, þar sem hann skoraði 23 mörk og lagði upp níu, áður en hann hélt til Real Sociedad.

Fyrri frétt

Hafrún Rakel skoraði sigurmarkið – Myndband

Næsta frétt

Häcken hafði betur gegn Inter og mætir Breiðabliki