Elías Már að ganga í raðir Meizhou Hakka í Kína

Elías Már er við það ganga í raðir kínverska úrvalsdeildarliðsins Meizhou Hakka.
Ljósmynd/NAC Breda

Elías Már Ómarsson er við það ganga í raðir kínverska úrvalsdeildarliðsins Meizhou Hakka, samkvæmt heimildum Íslendingavaktarinnar.

Greint var frá því fyrr í dag í kínverska miðlinum Sohu að ónefndur leikmaður frá Íslandi væri að ganga í raðir Meizhou Hakka.

Fotbolti.net vakti athygli á því í fyrradag að Elías Már væri að skirfa undir stóran samning við félag í Kína þar sem hann myndi fá vel borgað, en ekki var tekið fram hvaða félag Elías væri að semja við.

Elías Már hefur verið án félags síðan samningur hans við NAC Breda í Hollandi rann út í síðasta mánuði.

Elías Már var markahæsti leikmaður NAC Breda í hollensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð, þar sem hann skoraði átta mörk í 32 leikjum. Elías hefur leikið alls 9 leiki með A-landsliði Íslands.

Elías Már er 30 ára gamall og hefur leikið sem atvinnumaður frá árinu 2015. Elías hefur leikið með Vålerenga í Noregi, IFK Gautaborg í Svíþjóð, Excelsior og NAC Breda í Hollandi og Nimes í Frakklandi. Elías hefur skorað alls 115 mörk á atvinnumannaferli sínum.

Meizhou Hakka er í 14. sæti í kín­versku úr­vals­deild­inni af 16 liðum með 12 stig eft­ir 16 um­ferðir.

Fyrri frétt

Ísak Snær á leið til Lyngby á láni

Næsta frétt

Brynjólfur skoraði með skalla