Brynjólfur Willumsson skoraði fyrir Groningen þegar liðið vann 2:0-sigur á FCV Dender í æfingaleik í dag.
Groningen náði undirtökunum með marki strax á 3. mínútu leiksins. Leikmaður liðsins tók hornspyrnu og sendi inná markteig þar sem Brynjólfur reis hæst og skoraði með föstum skalla í vinstra hornið.
Markið má sjá hér að neðan.