Ísak Snær á leið til Lyngby á láni

Mosfellingurinn Ísak Snær er á leiðinni til danska liðsins Lyngby á láni frá Rosenborg.
Ljósmynd/Rosenborg

Mosfellingurinn Ísak Snær Þorvaldsson er á leiðinni til danska liðsins Lyngby á láni frá Rosenborg, samkvæmt norska blaðamanninum Stian André de Wahl hjá Nettavisen.

Ísak, sem er 24 ára framherji, hefur aðeins komið við sögu í fimm leikjum af 14 með Rosenborg í norsku úrvalsdeildinni á leiktíðinni og hef­ur ekki náð að skora.

Stian Wahl segir að Ísak muni ganga í raðir Lyngby á lánssamningi út tímabilið, með mögu­leika á kaup­um að hon­um lokn­um.

Lyngby mun leika í dönsku B-deildinni á næstu leiktíð eftir að hafa fallið úr dönsku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.

Fyrsti leikur Lyngby á komandi leiktíð verður þann 20. júlí.

Fyrri frétt

Viðar Örn Kjartansson – Svipmyndir frá atvinnumannaferli

Næsta frétt

Elías Már að ganga í raðir Meizhou Hakka í Kína