Elías hélt hreinu – Leipzig of stór biti fyrir Köln

Elías Rafn stóð í marki Midtjylland og hélt hreinu í sigri liðsins.
Ljósmynd/Campo

Elías Rafn Ólafsson stóð í marki Midtjylland og hélt hreinu í 2:0 sigri liðsins á heimavelli gegn Viborg í dönsku úrvalsdeildinni í dag.

Elías Rafn var í marki Midtjylland sjötta leikinn í röð og hafði lítið að gera í markinu í leiknum. Midtjylland gerði út um leikinn með tveimur mörkum á lokakaflanum.

Midtjylland er sem stendur á toppi deildarinnar með 18 stig eftir níu leiki, en AGF og FC Kaupmannahöfn eiga leiki til góða um helgina og geta tyllt sér á toppinn.

Ísak Bergmann Jóhannesson lék allan leikinn og átti sendingu sem lagði grunninn að eina marki Köln þegar liðið þurfti að sætta sig við 3:1 tap gegn RB Leipzig í þýsku úrvalsdeildinni.

Köln hafði unnið tvo leiki í röð fyrir leikinn og er í 4. sæti deildarinnar með 7 stig.

Þá lék Hjörtur Hermannsson allan leikinn fyrir Volos sem vann góðan 2:1-heimasigur gegn Asteras Tripolis í grísku úrvalsdeildinni. Þetta var annar sigur liðsins í röð, en Hjörtur hefur leikið allar mínútur í fyrstu fjórum umferðunum.

Fyrri frétt

Allt á floti í Blackburn – Myndband

Næsta frétt

Glódís Perla mætt aftur í vörn Bayern