Allt á floti í Blackburn – Myndband

Andri Lucas kom við sögu hjá Blackburn áður en náttúruöflin tóku yfir og leikurinn var stöðvaður.
Ljósmynd/Blackburn

Andri Lucas Guðjohnsen lék sinn annan leik með Blackburn Rovers í ensku B-deildinni þegar liðið mætti Ipswich Town á heimavelli sínum, Ewood Park, í dag.

Andri Lucas kom inn á sem varamaður á 65. mínútu þegar heimamenn leiddu 1:0, en nokkru síðar var leikurinn flautaður af þar sem aðstæður á vellinum urðu óviðunandi í rigningunni.

Ákvörðun verður tekin á næstu sólarhringum um framhaldið, hvort leikurinn verði spilaður frá upphafi eða haldið áfram frá þeirri mínútu sem hann var stöðvaður.

Benoný Breki Andrésson var í byrjunarliði Stockport sem vann 1:0-útisigur gegn Rotherham í ensku C-deildinni. Benoný var tekinn af velli á 74. mínútu. Stockport er í 8. sæti eftir níu umferðir.

Bjarki Steinn Bjarkason átti fínan leik fyrir Venezia sem tapaði 1:2 fyrir Cesena á útivelli í ítölsku B-deildinni. Venezia er í 11. sæti eftir fyrstu fjóra leikina á tímabilinu.

Gísli Gottskálk Þórðarson kom inn á sem varamaður á 73. mínútu hjá Lech Poznan sem vann 2:0 sigur gegn Termalica Nieciecza í pólsku úrvalsdeildinni. Lech Poznan er í 6. sæti.

Aron Einar Gunnarsson lék allan tímann í vörn Al-Gharafa sem gerði markalaust jafntefli við Al-Shamal í efstu deild í Katar. Al-Gharafa er í þriðja sæti.

Þá stóð Lúkas Blöndal Petersson í markinu hjá varaliði Hoffenheim sem vann 5:1-stórsigur á 1860 München.

Fyrri frétt

Brann hafði betur gegn Sandefjord

Næsta frétt

Elías hélt hreinu – Leipzig of stór biti fyrir Köln