Eggert Aron Guðmundsson var áberandi í liði Brann þegar það lagði Fredrikstad að velli í norsku úrvalsdeildinni í dag, 1:0.
Strax í upphafi leiks var hann nálægt því að koma Brann yfir en skot hans small í stönginni. Á 38. mínútu tók hann stutta hornspyrnu og sendi boltann á Emil Kornvig sem skoraði með föstu skoti úr teignum.
Eggert var öflugur í sóknarleiknum og fór af velli á 75. mínútu eftir gott dagsverk. Sævar Atli Magnússon lék allan leikinn fyrir Brann. Með sigrinum er Brann áfram í toppbaráttunni í Noregi og situr nú í 3. sæti með 46 stig, fjórum stigum á eftir toppliðinu. Freyr Alexandersson stýrir liðinu.
Á sama tíma lék Jón Dagur Þorsteinsson allan leikinn fyrir Hertha Berlin sem vann 3:0-útisigur á Nürnberg í þýsku B-deildinni. Hertha Berlin er í 13. sæti eftir sjö umferðir.
Gísli Gottskálk Þórðarson lék í rúman klukkutíma fyrir Lech Poznan sem gerði 2:2 jafntefli við Jagiellonia Bialystok í pólsku úrvalsdeildinni. Lech Poznan er í 7. sæti eftir níu umferðir.
Albert Guðmundsson lék í 74 mínútur fyrir Fiorentina sem gerði markalaust jafntefli við Pisa á útivelli í ítölsku A-deildinni. Fiorentina er án sigurs eftir fimm umferðir og er í 15. sæti deildarinnar.
Þá lék Kristófer Jónsson allan leikinn fyrir Triestina sem hafði betur gegn Renate, 3:0, í ítölsku C-deildinni. Óttar Magnús Karlsson var ekki í leikmannahópi Renate. Triestina fékk í upphafi leiktíðar tuttugu stiga frádrátt vegna fjárhagsörðugleika og er nú með níu stig í mínus.