Sandra skoraði aft­ur tvö mörk

Sandra María skoraði aftur tvö mörk fyrir Köln í Þýskalandi.
Ljósmynd7Köln

Sandra María Jessen var tvívegis á skotskónum þegar hún lék með Köln í 6:0-sigri á Warbeyen í 32-liða úrslitum þýska bikarsins í dag. Hún skoraði á 62. og 79. mínútu og gulltryggði þannig sannfærandi sigur.

Þetta var í annað sinn á aðeins nokkrum dögum sem Akureyringurinn skorar tvö mörk. Í síðustu viku sá hún ein um mörkin í 2:1-sigri Köln á Essen í þýsku úrvalsdeildinni og hefur því gert fjögur mörk í síðustu tveimur leikjum.

Sandra gekk til liðs við Köln frá Þór/KA í sumar en hún var markahæsti leikmaður Bestu deildarinnar á síðasta tímabili og jafnframt valin leikmaður ársins. Hún skoraði auk þess tíu mörk í fjórtán leikjum fyrir Þór/KA í sumar áður en hún hélt til Þýskalands.

Ingibjörg Sigurðardóttir lék síðari hálfleikinn með Freiburg sem vann 4:0-sigur á Hannover, en Emelía Kiær Ásgeirsdóttir kom einnig inn af bekknum þegar lið hennar Leipzig vann 7:0-stórsigur á Andernach.

Fyrri frétt

Uppgjör dagsins

Næsta frétt

Eggert lagði upp sigurmarkið