Diljá og María á skotskónum

Diljá Ýr og María Catharina voru báðar á skotskónum með liðum sínum.
Ljósmynd/brann.no

Tvær íslenskar knattspyrnukonur voru á meðal markaskorara í Evrópu í dag en liðin þeirra máttu þó sætta sig við tap.

Diljá Ýr Zomers kom Brann yfir gegn Vålerenga í undanúrslitum norska bikarsins með marki strax í upphafi seinni hálfleiks. Heimakonur jöfnuðu hins vegar og bættu við sigurmarki úr vítaspyrnu, þannig að leiknum lauk 2:1. Sædís Rún Heiðarsdóttir lék 69 mínútur fyrir Vålerenga og Arna Eiríksdóttir kom inn á í lokin.

Í Svíþjóð skoraði María Catharina Ólafsdóttir Gros sjötta mark sitt á tímabilinu þegar hún minnkaði muninn fyrir Linköping í 3:2-tapi gegn Djurgården. Markið kom á 75. mínútu en Linköping er áfram í fallsæti með 12 stig eftir 20 umferðir.

Hildur Antonsdóttir fékk tækifæri þegar hún kom inn af bekknum fyrir Madrid CFF í 2:1-sigri liðsins á Deportivo La Coruna. Madrid CFF er í 6. sæti.

Þá kom Amanda Andradóttir inn á sem varamaður á 82. mínútu í 4:1-sigri Twente gegn PEC Zwolle. Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir, sem nýlega gekk í raðir Zwolle, lék síðasta stundarfjórðunginn í leiknum. Twente er með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir, á meðan Zwolle er í 8. sæti af 12 liðum.

Fyrri frétt

Eggert lagði upp sigurmarkið

Næsta frétt

Daníel Tristan heldur áfram að leggja upp – Myndband