Andri Lucas Guðjohnsen er orðinn leikmaður enska B-deildarliðsins Blackburn Rovers. Félagið greindi frá kaupum sínum á 23 ára framherjanum í dag.
Andri Lucas skrifaði undir þriggja ára samning við Blackburn Rovers með möguleika á framlengingu um eitt ár. Hann kemur til félagsins frá belgíska liðinu Gent.
Blackburn lýsir því yfir að íslenski framherjinn muni styrkja sóknarlínu liðsins með hraða sínum, líkamlegum styrk, krafti og markanefi. Þar að auki hafi hann mikla reynslu þrátt fyrir ungan aldur, bæði úr landsleikjum og frá sterkum félagsliðum.
Á landsliðsferlinum hefur Andri spilað 34 A-landsleiki fyrir Ísland og skorað níu mörk frá því hann lék sinn fyrsta leik haustið 2021. Hann er nú á leið til að sinna landsliðsverkefni þar sem Ísland mætir Aserbaídsjan og Frakklandi í undankeppni HM 2026.