Hákon Arnar Haraldsson var á meðal markaskorara þegar Lille vann glæsilegan 7:1-útisigur á Lorient í frönsku úrvalsdeildinni í dag.
Hákon Arnar skoraði fimmta mark Lille á 87. mínútu leiksins og er nú kominn með tvö mörk í fyrstu þremur leikjum tímabilsins.
Franska vefsíðan Maxifoot hrósaði íslenska miðjumanninum í umfjöllun sinni og gaf honum einkunnina 7. Þar segir að hann hafi verið mjög virkur í sóknarhlutverki sínu, komið boltanum vel í dreifingu og skapað hættu með hornspyrnum og sendingum. „Hann var verðlaunaður undir lokin með marki sem var táknrænt fyrir áhrif hans í leiknum,“ segir í umsögn Maxifoot.