Tómas Óli Kristjánsson kom inn á sem varamaður á 69. mínútu þegar AGF vann 2:0-útisigur á Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld. Þegar hann kom inn á leiddi AGF með einu marki, en unga kantmanninum tókst að styrkja stöðu liðsins á lokasprettinum.
Tíu mínútum síðar braust hann upp vinstri kantinn með krafti, fór í gegnum varnarlínu heimamanna og lét skot vaða sem breytti um stefnu af varnarmanni. Boltinn barst beint fyrir samherja hans sem skoraði af stuttu færi og tryggði AGF öruggan sigur. Tómas átti þar með drjúgan þátt í seinna markinu.
Tómas hefur vakið verulega athygli fyrir frammistöður sínar í unglingaliðum AGF og var nýverið færður upp í aðalliðið. Leikurinn í kvöld var hans þriðji í úrvalsdeildinni á tímabilinu. Eftir leikinn skrifaði einn stuðningsmaður AGF á samfélagsmiðla: „Tómas Óli Kristjánsson – munið nafnið.“
Með sigrinum fór AGF á topp deildarinnar með 34 stig, en Midtjylland og Elías Rafn Ólafsson geta tyllt sér aftur á toppinn með sigri á Sønderjyske á sunnudag.
Ísak Snær Þorvaldsson lék í 87 mínútur fyrir Lyngby sem vann 2:0 sigur á heimavelli gegn Esbjerg í dönsku B-deildinni. Breki Baldursson var ónotaður varamaður hjá Esbjerg. Lyngby er á toppi deildarinnar með 32 stig, þremur stigum meira en Hvidovre og Hillerød. Esbjerg er í fjórða sætinu með 26 stig.