Andri Lucas Guðjohnsen var hetja Blackburn Rovers í ensku B-deildinni í kvöld þegar hann skoraði sigurmarkið í 2:1-útisigri á Preston North End. Hann var í byrjunarliði Blackburn og átti öflugan leik áður en hann var tekinn af velli á 84. mínútu.
Markið kom eftir rúmlega klukkutíma leik þegar Blackburn fékk aukaspyrnu vinstra megin. Boltinn sveif inn í teiginn og Andri Lucas stangaði hann á fjærstönginni af öryggi og kom gestunum þar með í forystu sem þeir héldu allt til loka.
Andri Lucas hefur nú skorað fjögur mörk í síðustu fimm leikjum Blackburn og heldur áfram að styrkja stöðu sína hjá liðinu. Blackburn er komið í 16. sæti með 19 stig eftir 15 umferðir, en Preston situr í 4. sæti deildarinnar með 26 stig og er þar í umspilssæti.